Lýsing
Legsteinarnir eru úr gegnheilu graníti og eru tilvaldir minnisvarðar. Á legsteinana er letur grafið með sandblástursaðferð og einnig bjóðum við uppá laser sérsniðnar myndir. Innifalið í verði er letur og valið eitt skraut eða tákn, lasermynd kostar aukalega.
Ferli:
- Veldu legstein
- Bættu við texta (ath. sá texti birtist orðrétt á legsteininn) og síðan minningarorð.
- Veldu tákn eða skraut – ef þú finnur ekki tákn eða skraut í listanum þá endilega láttu okkur vita og við gerum okkar besta til að bæta úr því.
- Þú getur síðan bætt við (valfrjálst) auka lasermynd úr lista.
- Því næst getur þú valið um aukahluti svo sem vasa og lukt fugla og eða ramma.
- Mögulegt er að fá sérsniðna lasermynd af t.d. viðkomandi á legsteininn.
- Ef valið er að hafa lasermynd á legsteininn, þá þarf að hlaða henni upp í næsta skrefi. Því meiri gæði og hærri upplausn myndarinnar því betra.
Framleiðsluferli:
- Eftir að pöntun hefur verið lögð inn, þá munum við senda þér uppsetningu í tölvupósti til samþykkis áður en að framleiðsla hefst.
- Eftir að samþykki fyrir uppsetningu hefur borist þá hefst framleiðsuferli.
- Eftir að legsteininn er tilbúinn þá munum við fara með legsteininn í þann kirkjugarð sem sem við á.
- Uppsetning legsteina og frágangur á höfuðborgarsvæðinu er frír en gegn vægu gjaldi í grennd við höfuðborgarsvæðið. Við sendum út á land á afgreiðslustöðvar Eimskips Flytjanda.
Hvernig mynd á að hlaða inn:
- Mögulegt er að hlaða myndum í jpg eða png í hárri upplausn.
- Sendu inn ljósmynd sem er skýr og í fókus með skarpann/skýrann/góðan bakgrunn.
- Því betri og skýrari sem myndin er því betra.